Eins og ég hef gefið áður í skyn á þessu bloggi þá er ég mjög aðhaldssamur þegar kemur að því að nota stikkorð (tag) fyrir færslurnar hérna. Stikkorð eru notuð til að auðvelda lesendum að finna efni sem gæti verið af áhuga. Á þessu bloggi má sjá stikkorð fyrir færslur neðarlega við færslu ef hún hefur verið stikkorðuð og síðan stikkorðasafn (tag cloud) í síðudálkinum.
Ég hef margrekið mig á það að vefir sem bjóða upp á stikkorð geta haft frekar ópraktískar aðferðir í þessum málum sem mér finnst oft til vansa. Stundum geta stikkorð verið bölvaður óþverri sem höfundar eða notendur eru að bjóða lesendum upp á og er ég að reyna að læra af þessum mistökum. Málið finnst mér aðallega snúast um hvort stikkorðin séu í raun og veru viðkomandi fyrir færslu og oft er það bara ekki þannig. Þetta gerir leit lesenda óþarflega tímafreka og jafnvel tilgangslausa. Þetta finnst mér því að ætti að varast og frekar að einfalda þetta fyrir lesendur.
Ég get alveg játað að það sé skekkja í minni eigin stikkorða notkun og jafnvel að ég sé of aðhaldssamur, en ég vona að ég læri að haga þessu betur með tímanum.
Ef ég lýsi því hvernig ég vel stikkorð fyrir færslu þá gæti ég að því að velja ekki stikkorð sem er það sama og færsluflokkurinn. Kannski er þetta óþarfi hjá mér og get ég vel skilið afhverju. En ég er einungis að sjá til að lesendur sem eru að gefa sér tíma til að kynna sér þetta blogg þurfi ekki að renna yfir sama atriði aftur og aftur þegar ákveðinn færsluflokkur og stikkorð er skoðað.
Annað sem ég athuga við vali á stikkorði er að heitið sé ekki bara nefnt í færslunni. Segjum að ég væri að skrifa um bloggkerfis hugbúnað almennt og hvernig þau nýtast manni í dag, og ég listaði meðal annars WordPress meðal margra annarra án þess að ræða sérstaklega um það. Ég hefði þá ekki valið WordPress stikkorð fyrir færsluna. Ef ég hefði gert það þá hefði lesandi sem væri að kynna sér færslur með WordPress stikkorðinu á blogginu ekki fengið nægjanlegar upplýsingar um WordPress í færslunni heldur bara nafnið. Stundum hefði það komið að liði ef lesandinn hefði aldrei heyrt um það áður og gæti þá hugsað sér að kynna sér það frekar, en annars finnst mér þetta vera óþarfi og vel að gera þetta ekki. Ég hefði bara notað WordPress stikkorð ef umfjöllun um það væri nægjanlega áberandi í færslunni hlutfallslega séð eða ég teldi kannski lesendur geta haft gagn af stikkorðinu.
Annars er hægt að sjá með önnur stikkorð hérna að stundum er færsla ekki með nægilega umfjöllun sem stikkorðið snertir, en ég geri það þá af því mér finnst það lýsandi fyrir færsluna, það sem ég hef í huga í færslunni.
Lesendur geta tekið eftir að ég vel ekki WordPress stikkorðið fyrir þessa færslu enda er ég aðeins að nefna Wordpress en ekki að ræða um það. Það gæti þó hugsast að ég myndi velja ‘Stikkorð’ sem stikkorð fyrir þessa færslu með tímanum ef ég kem með þiðju færsluna um stikkorð.