Ég kom niður á orðið tumblelogging á netinu en það er orð sem lýsir því þegar fólk heldur uppi síðu á netinu þar sem það skráir niður hugsanir sínar mjög stuttlega eða segir frá einhverju athyglisverðu sem það hefur komið niður á með tilvitnun eða tengli, myndum eða videó eða jafnvel stuttri samræðu. Þetta er dálítið ólíkt hefðbundnu bloggi í dag og hefur verið kallað pönk rokk bloggsins þar sem einblínt er á stutta framsetningu á því sem borið hefur verið fyrir mann. Það mætti líta á þetta sem úrklippubók.
Dæmi um tumblelog síðu er Anarchaia sem er talin sú fyrsta. Önnur er Projectionist.
Engar skyldar færslur.