ScienceHack - vísinda myndbanda leitarvél

Að leita að áhugaverðum myndböndum á video sharing síðum getur verið tímafrekt. Segjum að þú viljir leita að einhverju áhugaverðu efni um vísindi þá færðu mjög margar niðurstöður sem geta verið misáhugaverðar og maður eytt óþarflega löngum tíma í að fara yfir.

Ég kom niður á áhugaverðan vef sem lofar góðu en það er ScienceHack sem er vísinda myndbanda leitarvél. Vefurinn er þó á alpha stigi þannig að það er ekki mikið efni sem er komið.

ScienceHack er fyrst og fremst ætlað almenningi þannig að þetta er kannski ekki sérstaklega áhugavert fyrir lengra komna. En þetta getur samt verið af áhuga fyrir yngri nema eða einhvern með áhuga á vísindum.

Þess má geta að öll myndbönd þarna eru farin yfir af vísindamanni til að sannreyna nákvæmni og gæði þeirra.

Koma með athugasemd