Ein af þeim vefsíðum sem ég sæki mikið er YouTube og er ég notandi þar, hef þannig eigin YouTube síðu og get gefið myndböndum einkunn og safnað myndböndum, flokkað og jafnvel embeddað ákveðinn myndbandalista á eigin vefsíðu sem spilara þó takmörk séu á hversu mörg myndbönd birtist í hverjum spilara.
Eitt af því sem mér finnst þó vanta á YouTube er að geta hlaðið myndböndum niður á harðan disk. Þetta þarf maður annars að gera eftir kúnstarinnar reglum og leiðist það.
En á þessu hefur orðið skemmtileg breyting. Ég fann iDesktop.tv þar sem ekki bara er hægt að horfa á YouTube myndbönd og leita að þeim heldur líka hlaða þeim niður. Svo auðvitað getur maður skráð sig hjá þeim og safnað í lista. iDesktop býður annars upp á svipaða möguleika og YouTube, suma betri og suma á vantandi.

Annar spennandi möguleiki til að hlaða YouTube myndböndum niður á harðann disk er Orbit Downloader sem maður þarf að setja upp á tölvu. Með Orbit Downloader getur maður hlaðið niður myndböndum frá mörgum video sharing síðum.