Eru Bandaríkin að fjármagna uppreisnarhópa í Íran?

Ég var að lesa athyglisverða frétt á Telegraph þar sem sagt er frá því að Bandaríkin séu að fjármagna hryðjuverkahópa í Íran til að valda þar óreiðu.

Ég hef heyrt þetta áður, en þessi frétt fannst mér meira en traustvekjandi.

Samkvæmt fréttinni þá eru fulltrúar CIA sagðir vera að aðstoða stjórnarandstöðu uppreisnarheri meðal ýmissa þjóðernislegra minnihlutahópa.

Þetta er sagt umdeilt þar sem CIA sé í raun að eiga við hópa sem grípa til hryðjuverkaaðferða sem beinast gegn Írönsku stjórninni.

Blaðið segir að það hafi rætt við menn sem segjast kunnugir þessu og nefnir háttsettan fyrrverandi CIA fulltrúa og annan sem er fyrrum fulltrúi hjá Bandaríska utanríkisráðuneytinu.

Bandaríkin hafa neitað því opinberlega að eiga þátt í slíku en Teheran hefur lengi haldið því fram að hafa orðið vart við ummerki eftir bæði Bandaríkin og Bretland í árásum skæruliða hópa á öryggissveitir sínar.

John Pike yfirmaður áhrifamikils sérfæðingahóps í Washington sagði eftirfarandi:

“The activities of the ethnic groups have hotted up over the last two years and it would be a scandal if that was not at least in part the result of CIA activity.”

Ef þetta er rétt og ég hef trú á því að svo sé, þá vil ég slá því föstu að málin ganga alltaf fyrir sig svona. Stofnanir ríkja hafa alltaf verið með undirróðurstarfsemi í óvinaríkjum eða önnur svipuð umsvif sem hafa þann tilgang að grafa undan fjandsamlegum stjórnvöldum eða koma höggi á þau.

Getur það talist réttlætanlegt að ríki eins og Bandaríkin séu að væna önnur ríki um að vera gera það sama?

Koma með athugasemd