Project Orion - tilraunaverkefnið sem átti að leyfa mönnunum að ferðast milli plánetna með hjálp kjarnorku

Ég kom niður á ágætis myndband þar sem sýnt er nokkurn veginn hvernig ein tegund kjarnorkuknúins geimskips hefði verið.

Það var í gangi tilraunir á sínum tíma sem gekk undir nafninu Project Orion og var athugun á möguleikanum á að knýja geimför með nuclear pulse propulsion og átti að miða að því að finna ódýran og hakvæman kost til að ferðast á milli plánetna. Þetta verkefni átt að hafa hafist árið 1958 en missti stuðning yfirvalda vegna mengunnar sem myndi hljótast af slíku og er talið hafa lokið nokkrum árum seinna.

Það var gert ráð fyrir því að kjarnorku sprengjum yrði varpað frá bakendi skipsins og sprengd nokkrum tuga metra frá og þannig myndi skipið verða fyrir miklum þrýstingi sem myndi knýja það áfram. Afköstin voru talinn geta orðið mikil allalvega í samanburði við aðra tækni sem er nýtt í dag til geimferða.

Í hönnun skipanna kemur eins staðar fyrir að gert hafi verið ráð fyrir því að ummál skipanna gæti verið frá 17 metrum og upp í 400 metra, og 300 tonn og upp í 8,000,000 tonn að þyngd og geta borið allt upp í 1080 sprengjur.

Það má lesa betur um þetta á Wikipedia eða hérna.

Hérna er myndbandið sem ég kom niður og sýnir þetta nokkurn veginn.

Koma með athugasemd