The Big Questions er Breskur sjónvarpsþáttur sem tekur á trúar og siðrænum málum og er sjónvarpað beint á BBC One á sunnudögum (skilst reyndar að núverandi þáttaröð ljúki í apríl í ár). Í hverjum þætti mæta fjórir þátttakendur með ólík trúarbragða og siðræn sjónarmið til pallborðsumræðna auk þess sem áhorfendum gefst kostur á að taka þátt í umræðunum.
Þeir sem búa í Bretlandi geta horft á þáttinn á netinu hérna.
Í þessum þætti hérna eru þátttakendurnir meðal annars Lord Carey fyrrum Erkibiskup Kantaraborgar og Richard Dawkins Prófessor.
Umræðuefnin eru
Á guðlast ennþá að teljast glæpur?
Getum við lifað án þess að ljúga?
Eiga trúarbrögð að vera einungis fyrir fullorðna?
Ég setti öll 6 YouTube myndskeiðin frá þættinum í spilara.