Tilgangur mannkyns hlýtur að tengjast einhverjum háleitu markmiði því annars finnst mér tilveran vera einskisverð og innantóm og sífellt streð.
Þetta sífellda streð hefur þó sinn tilgang enda er það í eðli flestra mannvera að vera á hreyfingu og sækja fram í því að lifa og komast af og leggja sinn lærdóms skerf í reynslugrunn tilvistarinnar. Þannig að jafnvel skipulag og mannvirkjagerð mannverunnar þegar á er lítið frá hærra sjónarhorni þar sem samansöfnuð þekking tilvistarinnar er til staðar, reynist engu að síður eðlilegur og jafnvel nauðsynlegur hluti hennar. Þetta er tilfellið reyndar á flestum sviðum tilvistarinnar í öllum alheiminum, að það sé hannað og byggt upp burðarvirki siðmenningar.
Mér kom þetta til hugar sérstaklega, í tilefni myndbands þar sem fjallað er mann að nafni Jacque Fresco og verk hans en hann er iðnverkfræðingur, arkitektúrs hönnuður, félagsverkfræðingur og framtíðarfræðingur. Hann skrifar og heldur fyrirlestra um málefni eins og heildræna hönnun sjálfbærra borga, orkuhagkvæmni, stjórnun náttúruauðlinda og þróaða sjálfvirkni með fókus á ávinninginn fyrir samfélagið, samkvæmt Wikipedia grein um hann.
Þetta stutta myndband hérna er sýnishorn úr fræðslumyndinni Future by Design eftir William Gazecki sem lýsir lífi Jacque Fresco, heimsspeki hans og og tæknilegum afrekum.