Nýlegt viðtal við Richard Dawkins þróunarlíffræðing

Hérna er myndband frá sjónvarpsviðtali við Richard Dawkins þróunarlíffræðings og allsherjar guðleysingja á Kanadísku sjónvarpsstöðinni Shaw TV í lok apríl þar sem drepið er aðeins á bók hans ‘The God Delusion’. Þetta var ég að horfa á og fannst sæmilegt. En það voru samt ágætis punktar inn á milli sem gerði þetta annars að þokkalegri afþreyingu, eitthvað sem maður getur horft á að kveldi til með popp og kók. Auðvitað var Dawkins til sóma í viðtalinu að mínu mati en spurningarnar voru frekar takmarkaðar enda er trúin og trúarbrögð í eðli sínu vafasöm efnistök, furðuleg og hjákátleg og erfiðleikum bundið að finna nokkuð skynsemigætt við það. Það er hægt, en það fer ekki mikið fyrir því.

Það koma auglýsingar á ca. 24:25 mínútu og viðtalið hefst aftur á 26:40 mínútu.

Koma með athugasemd