Feedburner er sælgæti

Það er eitt sem ég er að fíla í botn og finnst ógisslega gaman og það er Feedburner sem hjálpar bloggurum, podcasters og öðrum vef útgefendum að koma sér upp RSS fréttaveitu. Ég hef vitað af þeim um tíma en ákvað í gær að athuga betur hvað fólk á netinu er eiginlega að tala um og það kom mér verulega á óvart hversu öflugt Feedburnar er enda er Feedburnar leiðandi á sínu svið og er með um milljón notendur.

Árið 2004 var Feedburnar fyrst sett á laggirnar og 2007 eignaðist Google það. Google rekur auglýsingaþjónustuna Adsense og hefur gert Feedburner notendum kleift að hafa Adsense auglýsingar í Feedum og hafa þannig möguleika á að þéna pening með því.

Það eru fjölda möguleikar í boði og þjónustan því hreint ekki einföld heldur mjög gagnleg og skemmtileg.

Ég hef útbúið Feed fyrir þetta blogg og er hægt að skrá sig ofarlega til hægri í sidebarnum og fá sendan tölvpóst daglega með nýjustu færslum eða frekar litlum inngangi í færslu.

Tölvupóstur mun verða sendur milli klukkan 7 og 9 á morgnana á íslenskum tíma ef ný færsla hefur komið.

Hérna má sjá yfirlit yfir stillingar sem fínstilla feedið. Smellið á myndina til að fá hana stærri.

Hérna má sjá stillingar sem snúa að sjálfri útgáfunni á feedinu. Smellið til að fá myndina stærri.

Hérna má sjá Feedflare sem bætir ýmislegu í feedið. Eins og sjá má þá hef ég bætt við möguleikanum að senda feedið í tölvupósti ef einhver vill deila með sér. Ég hef líka það þannig að fjöldi athugasemda sem hafa komið við færslu eru gefnar upp. Síðan geri ég notendum kleyft að deila færslu með sér á Facebook. Ef notandi vill fá fleiri möguleika þá er bara að hafa samband við mig eða koma með athugasemd við þessa færslu.

Ein athugasemd við “Feedburner er sælgæti”

  1. [...] og ég skrifaði um fyrr í sumar þá er ég með Feed fyrir færslur sem ég læt útbúa fyrir mig hjá hjá sælgætinu [...]

Skilja eftir athugasemd