Íbúum Bandaríkjanna 18 ára að aldri eða eldri býðst nú spennandi möguleiki á að hafa auðveldari aðgang að sjúkraskrám sínum og öðrum heilsutengdum upplýsingum með Google Health sem er búinn að vera í burðarliðnum í nokkurn tíma en er búið að opna fyrir almenning fyrst nú í vikunni.
Ef maður býr í Bandaríkjunum þá getur maður notað Google notanda reikning til að skrá sig og snýst þessi þjónusta í meginatriðum um:
- Að koma sér upp eigin heilsu prófíl á vefnum
- Hlaða niður sjúkraskrám frá læknum og apótekum
- Fræðast um heilsumál og finna hjálplegt efni
- Tengjast nettengdum tólum og þjónustum
- Leita að læknum og og spítölum
Upplýsingum sem maður hefur aðgang að er síðan hægt að deila með læknum til að auðvelda yfirsýn þeirra. Upplýsingarnar eiga að sjálfsögðu að vera geymdar á öruggan hátt hjá Google og ekki seldar.
Sá sem býr í Bandaríkjunum og vill nota Google Health getur fært í prófíl sinn heilsu sína, lyf, ofnæmi og niðurstöður rannsókna og jafnvel að gera prófíla fyrir aðra fjölskyldmeðlimi.
Það á að vera hægt að flytja inn sjúkraskrár frá spítölum og apótekum sem eru Google Health partners.
Þetta er ennþá á beta stigi og er þjónustan enn ekki orðin almennilega virk eftir sem ég best veit.
Þetta er auðvitað spennandi þjónusta og er sennilega framtíðin eftir því sem fleira og fleira í lífi okkar færist á netið og verður meira aðgengilegra. Kannski verður Google Health eða önnur sambærileg þjónusta aðgengileg á Íslandi innan nokkurra ára.