Golden Shield Project sem stundum er þekkt undir heitinu Great Firewall of China utan Kína er ritskoðunnar og eftirlits verkefni sem Kína heldur uppi á netinu og er netkerfis eldveggur og er ætlað að blokka suma vefi fyrir kínverjum bæði innlenda og erlenda og jafnvel vinsælum vefum eins og YouTube sem reyndar er búið að afblokka sýnist mér.
Á WebSitePulse er hægt að sjá hvað vefir eru blokkaðir og sá ég nokkra viðkvæma vefi sem eru það.
Ég fann myndband sem lýsir þessu ágætlega og er um 22 mínútur. Ég gat ekki embeddað myndbandið þar sem það var ekki leyft.
Þarna er meðal annars talað við mann sem hefur sett inn á vefi efni sem á að vekja athygli á samfélagslegum vandamálum en verða síðan blokkaðir. Ég get ekki alveg gert mér grein fyrir hvaða ástæður liggja þar á bak við þar sem efni hans er sennilega ekki fjandsamlegt kínversku stjórninni.