Samkvæmt neytendasamtökunum Stopbadware.org er Google meðal fimm netkerfa í heiminum sem hýsir flesta hættulega vefi.
Google sjálft er bakhjarl Stopbadware.org og hefur sjálft lagt fram óunnin gögn sem Stopbadware.org hefur greint.
Skýringuna á því afhverju Google er svona áberandi á þessum lista er sú að svindlarar og aðrir glæpamenn á netinu hafa notfært sér bloggþjónustuna Blogger eða Blogspot sem Google er með og látið hýsa óværutengdar vefsíður samkvæmt tölvu öryggis sérfræðingum. Í maí var Google að hýsa 4,261 smitaða vefi. Hin fjögur netkerfin efst á listanum eru staðsett í Kína og leiðir China Telecom netkerfið listann með 48,834 smitaða vefi.
Í viðtali við PC World segir Maxim Weinstein stjóri Stopbadware.org að Google sé orðið mjög aggressívt í að láta til skarar skríða gegn badware.
Heimild: PC World
Ég var á Google myndaleitarsíðunni í gærkvöldi og smellti á eina mynd sem ég vildi skoða. En þá fékk ég í staðinn síðu frá Google með aðvörun sem var þessi (smellið til að fá myndina stærri):
