Einn af þeim sjónvarpsþáttum sem mér hefur líkað sérlega vel við var röð sjónvarpsþátta frá Granada Televison um Sherlock Holmes sem gerðir voru frá 1984-1994 og voru meðal annars sýndir hér á landi.
Þættirnir komu í nokkrum þáttaröðum og voru nefndir í réttir tímaröð: The Adventures of Sherlock Holmes, The Return of Sherlock Holmes, The Case-Book of Sherlock Holmes, The Memoirs of Sherlock Holmes.
Í þeim lék Jeremy Brett sjálfan Sherlock Holmes og er hann best þekktur í 40 ára leikæfi sinni fyrir þetta hlutverk. Hann sýndi góða frammistöðu í hlutverkinu og er talinn af sumum hafa túlkað Sherlock best af öllum. Í New York Times var skrifað að Brett hafi verið álitinn hin fullkomna ímynd Holmes: “breathtakingly analytical, given to outrageous disguises and the blackest moods and relentless in his enthusiasm for solving the most intricate crimes.” (New York Times, September 14, 1995, p. B15)
Jeremy Brett féll frá árið 1995 vegna hjartabilunnar. Þess má geta að Brett þjáðist af geðhvarfasýki.
Hérna er myndskeið frá einum af þættinum sem mér skilst að sé The Naval Treaty frá 1984 og er gerð eftir sögunni The Adventure of the Naval Treaty.