Sjálfhýst Wordpress blogg

Fyrir um ári síðan fór ég að blogga á Wordpress.com og kunni afar vel við mig þar. En það greip mig fljótt löngun í að vera minn eigin lénsherra á eigin bloggi og kom mér því upp bloggi sem keyrir á Wordpress blogghugbúnaðinum. Með því hafði ég meira frelsi og fleiri möguleika en ég hafði vanist áður. Þó það sé skemmtilegt að tilheyra bloggsamfélagi þá er það mun ánægjulegra að vera með sitt eigið sjálfhýsta blogg þó maður fái hvergi nærri eins marga lesendur og á bloggsamfélagi.

Að reka sjálfhýst blogg býður upp á það að maður getur sérsniðið bloggið sitt mun meir og bætt við möguleikum sem eru ekki í boði á bloggsamfélagi. Eins er jú gaman að setja þetta upp, viðhalda því og uppfæra á reglulegum fresti og stússast í kringum þetta. Ekki síst getur það verið skemmtilegra að birta bloggfærslur þar sem íbætur (plugin) geta pimpað upp færslu og gert hana meira áhugaverðari.

Það er fjöldi íbóta í boði fyrir Wordpress og er hægt að hlaða niður flestum þeirra frá vef Wordpress eða í kringum 2,500. Íbæturnar geta hjálpað manni við ýmislegt eins og almenna stjórnun, gerð og útlit færslu, mynda sýsl og notendaviðmót bloggsins. Svo má líka auðvitað nefna widget sem maður getur haft sýnilegt á blogginu og aukið notendagildi þess.

Það er hægt að nota Wordpress á ýmsa vegu. Möguleikarnir eru margir. Wordpress einskorðast ekki við persónulegt blogg eða blogg almennt hvort sem þú ert atvinnubloggari eða ekki eða fagbloggari. Það má annars sjá góða grein um möguleikanna hérna.

Til að mynda þá er hægt að nota Wordpress til að koma upp:

1. hefðbundnum vef þar sem færslur birtast ekki í tímaröð. Þá þarf maður að nota sérstök þemu eins og svokölluð magasín þemu.

2. Mynda gallerí eða ljósmyndablogg. Það má nýta ýmsa möguleika til að auðvelda manni að nota Wordpress sem gallerí eða ljósmyndablogg. Sérstök þemu og sérstakar íbætur eru í boði.

3. Kvikmyndavef með flash innihaldi. Sprout Builder er vefþjónusta sem er á reynslustigi og býður upp á að laga flash tengt efni sem er hægt að stinga inn í færslu.

4. sögu og tímalínu vef. Timeline er sjóngerfi widget fyrir tímasetningu viðburða. Viðburðir eru draganlegir og á að vera hægt að sjá ýmsar upplýsingar ef smellt er á einstök atriði. Það væri hægt að tengja þetta við kort, myndbönd, myndir og greinar til að gera söguvef. Það má sjá leiðbeiningar hvernig maður setur þetta upp hérna.

Það finnst Wordpress Timeline íbót en ég veit ekki hvað hún gerir nákvæmlega þar sem upplýsingar eru af skornum skammti.

Wordpress er í útgáfu 2.6 sem kom í júlí. Það verður að gæta að því að þær íbætur sem ég hef nefnt séu samhæfðar Wordpress útgáfunni. Annars hef ég stundum komist upp með að nota gamlar íbætur en stundum ekki.

Eins og stendur er Wordpress á íslensku ekki til staðar í gegnum Wordpress.org en ég veit um tvo aðila sem vinna að þýðingum. Sá fyrsti er Binni.is en þar má í skrifuðum orðum finna þýðingu fyrir útgáfuna 2.5.1. Hinn er Wordpress.is en þar er eins og stendur ókláruð þýðing fyrir 2.5

Þeir sem standa að Wordpress eru líka með spjallborðskerfi sem er hægt að fella inn í Wordpress. Það virkar betur með 2.5.1 útgáfunni heldur en 2.6 eins og stendur.

Það finnst aragrúi af vefjum sem bjóða upp á Wordpress þemu, bæði ókeypis og gegn gjaldi, í síðara tilvikinu kallast þau venjulega Premium themes. Á þessum vef til að mynda fást ókeypis þemu. Þemun má síðan sérsníða á auðveldan hátt eða búa til alveg nýtt.

Ein athugasemd við “Sjálfhýst Wordpress blogg”

  1. [...] skrifaði nýverið færslu um Wordpress blogghugbúnaðinn sem er alveg að taka af og hefur náð feiknavinsældum [...]

Skilja eftir athugasemd