Hágæða Wordpress þemað Video frá Quommunication

Ég skrifaði nýverið færslu um Wordpress blogghugbúnaðinn sem er alveg að taka af og hefur náð feiknavinsældum meðal bloggara og annarra sem nýta efnisstjórnunnarkerfi (CMS).

Eins og ég sagði í færslunni þá má nota Wordpress í meira en blogg því Wordpress er hægt að nota sem fullmótað efnisstjórnunnarkerfi. Það er hægt á einfaldan hátt að nota Wordpress sem hefðbundið CMS, en það er hægt að ganga almennilega til verks og þá þarf maður réttu græjurnar. Það finnast Wordpress þemu og íbætur (plugin) sem eiga að auðvelda manni að koma upp vef í þessum tilgangi.

Eitt slíkt er hágæða þemað Video frá Quommunication sem  gerir manni kleyft að setja inn á og deila myndböndum á vef með stíl og skapa netsamfélag í kringum myndbönd. Þemað er hægt að fá gegn greiðslu.

Skilja eftir athugasemd