Lesendur hafa kannski tekið eftir því að á þessu bloggi er notað tag eða merki yfir orð sem ég tengi við færslur. Það má sjá merkin við botninn í sumum færslum eða sem merkja ský (tag cloud) í síðudálkinum.
Ég var ekki sérlega hrifinn af svona merkingu fyrst þegar ég kynntist því en ég hef lært að meta það. Ég tek eftir því að margir vefir virðast nota tag í svo miklum mæli að mér finnst hreinlega því ofaukið og óaðlaðandi. Ég hef sjálfur því reynt að haga mínum færslu merkingum þannig að þau sé sem mest viðeigandi fyrir færsluna og fá í einu. Þetta er þó á tilraunastigi og ég mun alltaf endurskoða og reyna að betrumbæta merkingarnar.
Regla mín er sú að nota ekki merkingu yfir færslu sem er sú sama og færsluflokkurinn sem hún er sett í, af hverju ætti ég annars að gera annað? Eins reyni ég að takmarka merkingar við hverja færslu, er ekki annars hvimleitt ef maður er að kynna sér færslur eftir merkingum, að færslurnar koma fyrir á mörgum síðum, að maður sé að renna yfir sömu færslur aftur og aftur síðu eftir síðu?
Ef ég væri að gera eins og margir á vefnum í þessum málum þá mætti kalla það clutter eins og sagt er á ensku eða þegar eitthvað er yfirfullt og hamlar yfirsýn. Þannig finnst mér margir vefir vera sem nota merkingar.
Ég nota engar merkingar fyrir þessa færslu, en sumir kannski hefðu notað Tags, Web 2.0 og Tag cloud. Er það viðeigandi? Kannski Tags, en samt nei ég hef ekki áhuga.