Sérsniðin Google leitarvél fyrir Wordpress íbætur

Þeir sem eru að nota Wordpress.org vefinn til að leita að íbótum (plugins) fyrir Wordpress hafa ábyggilega tekið eftir hversu leitar aðgerðin er ófullkominn. Í fyrsta lagi fær maður of margar niðurstöður sem varla koma leitarefninu við meðan það sem maður hefur í huga getur verið mörgum síðum aftar. Ekki síst er það hvimleitt að reyna að fylgjast með nýjum eða uppfærðum íbótum þegar nýjar eða uppfærðar íbætur birtast ekki alltaf fyrst þegar rennt er yfir merkin (tags) fyrir þær en það geta verið yfir 200 fyrir eitt ákveðið merki eins og fyrir íbætur sem hjálpa með athugasemdir.

Leitar véla bestun (SEO) ráðgjafinn og vefsíðuhönnuðurinn Joost de Valk hefur tekið sig til og búið til sérsniðna Google leitarvél fyrir Wordpress íbætur og ég mæli sérstaklega með henni fyrir þá sem nenna ekki að eyða tíma í að leita að íbætum á Wordpress.org. Hún leitar eins og stendur bara á síðum Wordpress.org þar sem íbætur er að finna. Margar íbætur fyrir Wordpress er ekki að finna á vef Wordpress og eru þess í stað dreifðar um allan vefinn. Vonandi mun Joost de Valk víkka út leitarsviðið.

Hérna er til að mynda hægt að leita beint

Ein athugasemd við “Sérsniðin Google leitarvél fyrir Wordpress íbætur”

  1. Það verður bara að segjast eins og er að þessi leitarvél er í einu orði frábær.

    Joost de Valk, I’m the post author and if you come across this post, I just want to thank you for this custom search engine for Wordpress plugins, it has helped me alot and is much, much better then the engine on Wordpress.org.

Skilja eftir athugasemd