Jæja þá tókst mér eftir nokkuð erfiða tilraun að hafa alla færsluna í feedinu. Ég er að nota Feedburner og hélt að stillingarnar væri þar þegar þær voru síðan í stjórnborðinu hérna.
Ég er búinn að vera að nota mikið feed fyrir blogg í vikunni og fundist einkar þægilegt að geta lesið mörg blogg frá einum miðlægum stað og helst alla færsluna. Ég er annars að nota Sage viðbótina í Firefox til að lesa feed fyrir vefi og er ég ágætlega sáttur. Ég hefði reyndar viljað prufa Sage-Too viðbótina og sjá hvernig það kæmi út.