Ég held að ég muni fara að skoða meira athugasemdir við myndbönd á YouTube þar sem ég hef sett upp viðbót við Firefox sem heitir YouTube Comment Snob sem síar frá óæskilegar athugasemdir á YouTube.
Með þessari viðbót þá getur maður látið fela athugasemdir sem:
- Hafa ákveðinn fjölda stafsetningarvillna
- Hafa ekki neina hástafi
- Hafa einungis hástafi
- Byrja ekki á stórum staf
- Hafa of mörg greinarmerki (!!!!! ?????)
- Hafa óhóflega hástafi
- Hafa blótsyrði
Þegar maður síðan les athugasemdir á YouTube þá sér maður að sumar athugasemdir eru gráleitar og teksti hefur verið fjarlægður og annar settur í staðinn eins og: Comment hidden (Excessive punctuation.)
Ég prufaði þetta við eitt frétta myndband um Obama og af 42 athugasemdum höfðu 20 verið faldar.