Meðan ég var kristinn á síðustu öld þá las ég bók eftir mann að nafni John Shelby Spong, en Spong er frjálslyndur guðfræðingur og hefur haft umdeildar skoðanir á málefnum kristindóms og eins samfélagslegum málum. Þegar ég las bókina eftir hann sem mig minnir að hafi verið ‘Rescuing the Bible from Fundamentalism: A Bishop Rethinks the Meaning of Scripture‘ þá var ég enn ekki kominn á það stig að geta tekið fagnandi á móti hugmyndum Spong. Ef ég hefði kynnt mér frekar rit eftir hann meðan kristna trúin var renna af mér um miðjan þennan áratug og fram á þetta ár þá hefði það ábyggilega geta bjargað því litla sem ég hafði eftir af trú minni eða allavega frestað því að ég gengi af trúnni.
En nú er þetta ekkert sem ég þarf að hafa áhyggjur af þar sem ég tel kristindóm ekki lengur vera mér samboðinn og þarf þá ekki lengur að eltast við einhvern kristilegan innblástur. Eftir stendur einungis fólk sem mér finnst vert að gefa gaum þó það sé kristinnar trúar eins og frjálslynda guðfræðinga eins og Spong. Spong er sagður vera sterkur málsvari meðal annars réttinda samkynhneigðra og finnst mér það geta sagt til um að Spong sé þroskuð kristin manneskja og með janfvel þroskaða trú. Ég sjálfur var lengi vel ekki inn á þessari línu áður en ég gerðist trúarfráhvarfsmaður og getur það þá kannski sagt til um að ég hafi ekki haft neitt sérstaklega þroskaða trú. Ég var samt ekki fjandsamlegur gagnvart réttindum samkynhneigðra. Ég lét bara kristnu trúnna villa um fyrir mér og eiga þátt í því að ég sá ekki hlutina í réttu ljósi eða kannski var það bara mín trú sem fékk mig til þess, trú sem hefur tekið miklum breytingum á bara fáeinum mánuðum og kemur á sama tíma og ég gerist trúarfráhvarfsmaður.
Fyrir áhugasama þá er hérna grein um hann á Wikipedia. Og hérna er heimasíða hans.