Mér var farið að leiðast hversu lengi síða með færslum var að hlaðast niður. Það tók venjulega 15 sekúntur og allt upp í 25 sek. Ég er að nota Firefox viðbótina Firebug og hef getað fylgst með þessu. Mig fór að gruna að plugin sem ég er að nota voru að hægja á síðunni og þvi gerði ég tilraun með að afvirkja þau öll og virkja aftur eitt í einu. Þegar ég hafði afvirkjað öll pluginin þá tók það 2 sek. að hlaða niður síðu með færslum. Það var síðan eitt plugin sem virtist vera að hægja á síðunni mun meir en önnur og var það gallerí plugin. Ég hef fjarlægt það plugin og mun sennilega ekki nota það meir. Það tók forsíðuna áðan 6 sekúntur að hlaðast niður að fullu í vafranum eftir að önnur plugin höfðu verið virkjuð aftur.