Þá er ég búinn að vera nota nýjustu WordPress betu útgáfuna (2.7 Beta 2) í sólarhring og er farinn að kynnast því betur. Mín viðbrögð eru þau að þessi uppfærsla sé með mjög góðar nýjungar. Ein af þeim er nýi síðudálkurinn í stjórnborðinu sem safnar saman og flokkar atriðum í samanfallinn lista. Önnur nýjung er möguleikinn að geta valið margar færslur saman til gera ákveðnar breytingar á þeim en þó ekki innihaldinu. Ein önnur lík nýjung er síðan skjót breyting einstakrar færslu þar sem manni gefst færi á að fara betur í breytingu á henni með því að velja annan færsluflokk í staðinn, breyta stikkorðum og velja önnur í staðinn og fleira.
Núna er hægt að uppfæra WordPress í stjórnborðinu með því að nota sjálfvirkt uppfærslu script sem hleður niður nýjasta WordPress og setur það upp. Núna er líka hægt að setja upp nýtt plugin beint í stjórnborðinu.
Hérna á myndinni að neðan má sjá hvar ein færsla hefur verið valinn til skjótrar breytingar (fá upp upphaflegu stærð með því að smella á myndina).
