Realityum er tilbúið fyrir farsíma

Ég er búinn að gera þetta blogg tilbúið fyrir farsíma. Ég notaði WordPress pluginið WP viewMobile til þess og krefst það útgáfu 2.5 og virðist virka með 2.7 Beta 2. Það ber kennsl á gesti sem skoða bloggið með farsíma og birtir sniðmát sem er bestað fyrir farsíma og slíkan búnað. Það er hægt að velja að láta minnka myndir eða fjarlægja.

Ég er ekkert smá ánægður með útkomuna því ég prufaði vefinn með próf tólinu ready.moby sem metur hæfni vefs fyrir farsíma, áður en ég setti upp pluginið. Útkoman var þá 1 stig af 5 sem er mjög slæmt og stærðin var 408k. Hraðinn var 100.90s með GPRS og 23.66s með 3G. Kostnaður hefði getað verið nokkur við þetta.

En eftir að ég setti upp pluginið þá fóru hlutir að gerast því ég fékk nær því 4 stig af 5. Stærðin var komin niður í 17.42k og hraðinn með GPRS var 6.22s en 1.97s með 3G. Kostnaður hefði verið lítill sem enginn.

Ég prufaði þetta og var þetta mjög fljótt að hlaðast niður. Ég er með frekar lítinn farsíma frá 2004-5 með frekar litlum glugga miðað við nýja farsíma og kemur öll færslan inn nema kannski myndir í einstaka tilfellum. Ef slóðin á forsíðuna er sleginn inn í farsímann þá kemur inngangur í færslur og þarf þá að smella á fyrirsögnina til að fá hana alla. Í botninum á forsíðunni er síðan tenglar á fastar síður bloggsins sem venjulega eru í hausnum á síðu og síðan koma færsluflokkar og því næst eldri færslur eða færslusafnið.

Varðandi próf tólið á ready.moby þá get ég mælt sterklega með því. Maður þarf að skrá sig og fær eins og stendur sent lykilorð í tölvupósti.

ready.mobi er tól sem tilheyrir vefnum mobiForge sem hét áður dev.mobi, þar er hægt að fá gagnlegar upplýsingar varðandi farsíma og vefinn.

En hérna eru annars skjáskot af prufunni fyrir realityum:

Samantekt frá ready.moby prófun

Samantekt frá ready.moby prófun

Farsíma búnaðar hermir

Farsíma búnaðar hermir

Koma með athugasemd