Ég er eiginlega nýbyrjaður að fylgjast með bloggum með því að gerast áskrifandi að þeim. Þetta höfðaði ekki svo mikið til mín fyrr en ég var búinn að bókmerkja það mörg blogg að það var orðið erfiðleikum bundið að fylgjast með þeim öllum í vafranum.
Ég setti þá upp Firefox viðbótina Sage sem er feed lesari og þetta var orðið strax skaplegra enda mun skilvirkari máti að fylgjast með bloggum. Það skiptir miklu að geta látið feed lesara sækja bara uppfærð blogg, það sparar manni tíma og fyrirhöfn.
Ég var búinn að nota þetta um tíma þegar ég vildi eitthvað meira og fór því að kynna mér feed lesara. Ég ákvað að prufa FeedDemon sem er ókeypis og er fyrir Windows kerfi og finnst hann koma ágætlega út og finnst svona lesari betri að nota heldur en einfaldar lesarara viðbætur fyrir vafra, allavega Sage. Ég gat importað OPML skrá með feed slóðunum frá Sage yfir í FeedDemon og var þá ekkert annað að gera en að byrja að lesa.
FeedDemon býður upp á ýmsa sniðuga möguleika sem geta auðveldað yfirferðina eins og þegar maður hefur gleymt að merkja færslur sem lesnar en þá getur maður notað það sem er kallað Panic Button og valið að merkja við færslur sem lesnar sem eru 24 stunda gamlar, 48 stunda eða 5 daga gamlar. Annar gagnlegur möguleiki er sá að fá lista yfir feed sem hafa ekki verið uppfærð í ákveðinn fjölda daga og haft þannig yfirsýn yfir feed sem gæti ekki verið þess virði að hafa í lesaranum eða þá að flytja þau í sérstaka möppu sem maður er ekki láta fylgjast með á reglulegum fresti. Enn annar möguleiki er offline stuðningur sem er sagður góður. Með honum er hægt að velja að hlaða niður myndum í feedi og síðum sem tenglar í feedi vísa á áður en maður velur að vera offline. Þetta er kannski ekki nauðsynlegt heima hjá manni þó aðstæður gætu skapast þar sem það kæmi að notum, en á ferðalögum gæti þetta verið sniðugt. Mér sýndist þetta ekki sækja allar síður sem tenglar í feedinu vísaði á en það er stillingaratriði.
Það er líka ágætt að myndbönd birtast líka í FeedDemon.