Hef uppfært bloggið í WordPress 2.8 Beta 2 útgáfuna núna í kvöld og gekk það vel. Útgáfan sem er á undan og er 2.7 hefur reynst mjög vel síðan hún kom í desember og hefur verið þörf á aðeins einni minniháttar uppfærslu síðan. Sú útgáfa kom með umtalsverðum betrumbætingum og breytingum á viðmóti og útliti stjórnborðs. 2.8 útgáfan sem er að fara að koma úr beta stigi er líka með umtalsverðum betrumbætingum þó minna beri á þeim viðmótslegu í þetta sinn.
Meðal helstu breytinga má nefna:
- Nýtt widget API
- Nýtt widget viðmót í stjórnborði
- Litun skipana og aðgerðaleit innbygð í plugin og þemu ritla
- Skoða þemu safnið á vef WordPress og setja upp þemu í gegnum stjórnborðið
- Hraðari hleðsla á síðum stjórnborðs
- betrumbætt hleðsla á JavaScript
Það má sjá yfirlit yfir breytingarnar fyrir WordPress 2.8 á WordPress Codex.
Ein af helstu breytingum í 2.8 er sú að geta fundið nýtt þema á vef WordPress beint í stjórnborðinu og sett upp. Eins og sjá má á myndinni fyrir neðan þá getur maður valið þemu með því að sía eftir ákveðnum sérkennum. Þetta á að auðvelda notendum að finna og setja upp þemu án þess að þurfa að nota FTP skráarflutning frá tölvu manns til vefþjóns þar sem vefurinn er hýstur. Það má minna á að sambærileg nýjung var kynnt í 2.7 útgáfunni fyrir plugin.

Það hefur líka orðið mikil breyting á widget umsjónarhlutanum og er þetta orðið þægilegra. Til að mynda þá eru widget sem hafa verið notuð áður geymd í sérhluta óháð öðrum notuðum. Maður getur valið að draga widget þaðan og nota eða eyða. Þetta er sérstaklega þægilegt ef maður hefur til að mynda gamalt teksta widget sem hefur teksta eða kóða í og maður vill nota á ný.
Engar skyldar færslur.
