Hef sett upp nýtt WordPress plugin sem heitir WordPress Mobile Pack og má finna á vef WordPress.org. Það gerir bloggið farsíma tilbúið með XHTML-MP (Mobile Profile) staðlinum. Ég hef prufað tvö önnur en þetta er mun betra. Það er gefið út af dotMobi sem eiga mikið undir sér í þessum efnum og hafa þeir sem hafa hannað þetta plugin lagt mjög mikið í það.
Það sýnir ekki bara sérstakt snið fyrir gesti sem koma inn á bloggið með farsíma búnaði heldur getur bloggari haft umsjón með blogginu og samið nýja færslu með slíkum búnaði. Það eru síðan margir góðir stillingar möguleikar sem eru í boði sem ég hef ekki séð í öðrum sem ég hef notað. Það má sjá nánari lýsingu og skjáskot í greininni The dotMobi WordPress Mobile Pack á einum undirvefnum hjá þeim.
Ég mæli sérstaklega með þessu plugin og líka því að áhugasamir sem hafa ekki þegar kynnt sér þennan aðila fari á vef hans og kynni sér starfsemi hans því vefurinn hjá þeim er stór með mörgum öðrum undirvefum eins og mobiReady sem er tól til að meta hversu mikið vefur sé tilbúinn fyrir farsíma búnað.
Það má síðan bæta við að þeir sem eru að nota Firefox geta bætt vinsælli viðbót við hann sem heitir User Agent Switcher sem gerir manni kleyft að skipta um aðgangsbúnað vafrans eins og farsíma í stað borðtölvu eða annarskonar vafra. Þetta kemur sér einkar vel þegar maður vill skoða hvernig vefur manns er að virka með farsíma.
Engar skyldar færslur.