Mér finnst ræðan sem Richard Stallman stofnandi Frjálsu hugbúnaðarsamtakanna hélt á pallborðsumræðufundi á World Summit on the Information Society (WSIS) í Túnis árið 2005 vera áhugaverð því ekki bara var hún áheyrileg heldur líka fræðandi.
Umræðan var undir heitinu Is Free/Open Source Software the Answer?
Ég hef verið að velta þessu fyrir mér um tíma og finnst merkilegt hvernig Richard gerir grein fyrir því hvað hann meini með frjálsum hugbúnaði (free software), sérstaklega þegar á honum má skiljast að þegar fólk noti frjálsan hugbúnað þá sé það ekki endilega að nýta hann frjálst. Það að vera ekki meðvitaður um frelsi sitt til að nota hugbúnaðinn frjálst á þann hátt sem leyfi frjáls hugbúnaðars segir til um megi jafna við það að gera lítið úr frelsi sínu ef ég skil þetta rétt.
Í skilgreiningu frjáls hugbúnaðars samkvæmt Richard eru tekin fram fjögur frelsi (leyfi) sem hugbúnaðurinn verður að veita til að geta fallið undir hana og eru þau:
- 0. Leyfi til að keyra forritið í hvaða tilgangi sem er.
- 1. Leyfi til að skoða hvernig forritið vinnur og breyta því eftir þörfum (aðgang að frumkóða forritsins þarf nær alltaf til þess)
- 2. Leyfi til að dreifa afritum af forritinu.
- 3. Leyfi til að breyta forritinu og bæta það, og dreifa útkomunni til annarra svo að samfélagið í heild hagnist af breytingunum (aðgang að grunnkóða forritsins þarf til þess).
Heimild skilgreiningar tekin af: Frjáls hugbúnaður á Wikipedia.
Sjá má frekari upplýsingar á vef Free Software Foundation.
En hérna er ræðan í alls tveimur myndskeiðum:
Richard Stallman, Father of the Gnu & all that is Linux pt1
Richard Stallman, Father of the Gnu & all that is Linux pt2
Engar skyldar færslur.