Ég verð að lýsa yfir ánægju minni með Google Reader sem ég hef loksins komist upp á lag með að nota. Ég hef verið að prufa fjölmarga vefstreymi borðtölvu lesara í gegnum tíðina og notað einn að staðaldri sem er álitinn vera mestu eiginleikum búinn, en Google Reader virðist hafa það áhugaverða kosti að ég get í rauninni ekki annað en haldið áfram hjá þeim.
Það helsta sem hefur stuðlað að því er möguleikinn að geta fylgst með tölulegum upplýsingum um streymin sem maður er áskrifandi að. Það sem mér finnst vera lykilatriðið hérna er það að þó vefstreymi tæknin sé afar gagnleg og tímasparandi fyrir mann og gerir manni kleyft einna helst að fylgjast með uppfærðu efni á vefum á hraðvirkann og einfaldann máta, hagkvæman og jafnvel orkusparandi líka þá getur þetta engu að síður orðið of mikið og maður verið að eyða of miklum óþarfa tíma í yfirferðina og því skiptir máli að sjá til þess að draga úr flæði sem ekki er að gera nokkurn skapaðan hlut.
Það tók mig smá tíma að átta mig á því að best væri að hafa þetta þannig að renna bara yfir fyrirsagnir streymanna og spara þannig fyrirhöfnina. En fyrst var ég frekar tregur til þess þar sem fyrirsagnir segja ekki allt og maður gæti því farið á mis við áhugavert og jafnvel gott efni. En flæðið var orðið slíkt að ég óaði mér við því að hlaða þeim niður til að renna yfir þetta og því fór ég hafa þennan hátt á. En þetta var líka orðið of tímafrekt og því fór ég að fylgjast með tölulegum upplýsingum á Google Reader og kom mér það á óvart að hlutfallið milli fjölda nýrra færslna og skoðaðra gat verið mun meira en ég hafði gert mér grein fyrir.
Með því að geta séð til að mynda á Google Reader að ákveðið vefstreymi hefur haft að jafnaði tug eða jafnvel tugi færslna á dag en að maður hafi einungis skoðað, segjum tug síðustu 30 daga þá ætti maður að fara að íhuga hvort það sé þess virði að fylgjast með streyminu þar sem þetta getur verið óþarflega tímafrekt og hvimleitt að renna yfir, ekki síst ef maður er áskrifandi að fjölmörgum slíkum streymum.
Til að sýna hvernig þessar tölulegu upplýsingar líta út hjá mér á Google Reader eftir að ég hef gert hreingerningu síðustu vikurnar, þá kemur þetta svona út:

Hérna á fyrstu myndinni fyrir neðan má sjá hversu mikið af færslum í einstaka streymi ég hef lesið síðustu 30 daga og hversu hátt hlutfall það er af öllum færslum í streyminu.

Fjöldi skoðaðra færslna í streymi síðustu 30 daga og hlutfall af heildarfærslum þess.

Hversu oft einstaka streymi er uppfært og hlutfall skoðaðra.

Streymi sem eru uppfærð sjaldnast.
Engar skyldar færslur.