Mér hefur alltaf fundist Pat Condell vera með mest áhugaverðustu afstöðuna til trúarbragða, það er að segja af því sem hef ég kynnst. Því það sem hann gerir er að nálgast efnistökin á frekar óvenjulegri máta en ég verð venjulega var við og er beint áfram í meðferð sinni á þessum atriðum og sviptir þau þeirri helgi sem þau eiga ekki skilið.
Mörg atriði sem eru álitinn eiga að vera helg, eiga alls ekki skilið að vera meðhöndluð á þann varfærnislega máta sem venjulega er gert, því augljóst er að við blasa atriði sem eru svívirðilega á skjön við heilbrigða skynsemi.
Þessi atriði fær fólk til að breyta illa og tálma eða minnsta kosti fordæma það sem á að vera fólki lausn undan samfélagslegu heftelsi og jafnvel sjúkdómum og halda þannig heilu samfélögunum í gíslingu þessara hugaróratengdu viðmiða sem sprottin eru af ótta við eitthvað sem er nákvæmlega ekki til staðar nema í huga fólks fyllt einhverri sjúklegri sektarkennd og á slíku því verður að taka á.
Hérna er annars reiðilestur Pat Condell’s sem hann hlóð nýlega upp á YouTube rás sína og nefnir ‘Aggressive atheism’.
Engar skyldar færslur.