Í framhaldi færslu minnar í september um mynda leitarvefinn Photoree þá vil ég segja að ég hef verið að nota vefinn mér til mikillar ánægju eftir það. Ég ákvað síðan fljótt eftir á að stofna til notanda á Flickr og byrja að safna myndunum í favorites enda eiga myndirnar í síunni að vera komnar þaðan.
Ég vildi gera þetta til að halda utan um myndirnar, hafa gagnlegar upplýsingar um þær aðgengilegar og nýta myndirnar þannig betur bæði til skoðunnar og eins ef ég skildi nota þær á vef ef leyfi fyrir slíku væri fyrir hendi þannig að nauðsynlegar leyfis upplýsingar væru til staðar. Ég hafði ekki sett upp neitt forrit á þeim tíma sem gæti hjálpað mér til þess og hugsaði ekki út í það, en það ætti kannski frekar að hafa vera lausnin.
Að hafa notað Photoree hefur verið reynsluríkt á ýmsan hátt. Sían hefur náð að þrengja sig svo vel að mér eru sýndar afskaplega flottar myndir og oft sérstaklega áhugaverðar, og eftir því sem látið er reyna á síuna þá virðist ég vera að fá fleiri og fleiri myndir af slíku tagi og þetta hefur ekki bara reynst mér ánægjulegt heldur líka lærdómsríkt.
Hérna fyrir neðan má síðan sjá skjáskot frá síðu þar sem manni er sýnd mynd sem sían telur að geti verið af áhuga fyrir mann og virðist vera ákveðið þema kvöld sé í gangi þegar þetta er tekið.
Fyrir ofan síðan er skjáskot af síðu með nýjustu myndunum sem mér hefur líkað vel við.
Það er aragrúi afskaplega áhugaverðra mynda á Flickr og finnst mér það á mörkunum að ég geti fengið mig til að birta einstaka myndir þegar framboðið er svo mikið. En ég ákvað að birta með færslunni mynd sem tengist einu af hugðarefnum mínum þessa dagana og er umrætt efni eitt það allra áleitnast fyrir mér á þessum tímapunkti.

Photo by Bashar Al-Ba’noon – http://www.radiantguy.com/
Skyldar færslur:

