Athugið, upphlaðnir þættir hafa verið teknir niður af YouTube vegna brota á notanda reglum. Mun reyna að setja inn annað myndskeið þegar það kemur.
Í þessum þremur þáttum, Testing God, kannar BBC hvað ályktanir eðlisfræðinnar hefur á röksemdir guðstrúar og guðleysis um alheiminn. Þarna koma fram vísindamenn sem geta verið guðstrúar eða ekki og raunvísindamenn sem jafnframt eru guðfræðingar.
Þetta eru semsagt þrír þættir með 6 myndskeiðum fyrir hvern og má sjá það fyrsta hérna:
Kardashev scale er aðferð við að flokka hversu langt tæknilega siðmenning geti verið kominn. Það var fyrst lagt til af Sovéska stjörnufræðingnum Nikolai Kardashev árið 1964. Skalinn hefur þrjá nefnda flokka sem eru kallaðir Týpa I, II og III og byggist á magni nýtanlegrar orku sem siðmenning hefur til ráðstöfunar og stigi geim landnáms. Kardashev skalinn er aðallega notaður af SETI rannsóknarmönnum, vísindaskáldsögu höfundum og framtíðarfræðingum sem fræðilegur rammi.
Almennt séð þá á Týpa I siðmenning að hafa meistrað auðlindir heimaplánetu sinnar, Týpa II síns sólkerfis og Týpa III stjörnuþoku sinnar. Yfirstandandi siðmenning jarðar er álitin hafa Kardashev gildi í kringum 0.7 og hefur því enn ekki komist á Týpu I stigið. Það geta verið allt að nokkrar aldir ef ekki margar í það ef ég á að leggja réttan skilning í það hvað mannkyn gæti meistrað auðlindir heimaplánetu sinnar fljótt miðað við núverandi nýtanlega orku og hversu hratt orkunýtingu hefur miðað áfram. Kannski er tíminn heldur styttri og vilja sumir meina það. Það er talið að jarðarbúar gætu síðan náð Týpu II siðmenningu eftir nokkur þúsund ár.
Kennilegi eðlisfræðingurinn Dr. Michio Kaku hefur nefnt í einu riti sínu Týpu IV siðmenningu sem gæti virkjað orkuauðlindir eins og hulduorku sem er tegund orku byggð á tilgátu og á að fyrirfinnast í öllum geimnum. Jafnvel Týpa V siðmenning hefur verið nefnd og gæti þá hugsanlega meistrað allan alheiminn.
Þó þetta sé einungis á hugmyndafræðilega sviðinu þá er þetta athyglisvert og gæti rennt enn meiri stoðum undir hvað “siðmenningar” út í hinum víða alheimi og jafnvel enn víðar gætu verið færar um að afreka og gætu staðið jarðarbúum ólýsanlega framar.
Hérna í þessu myndbandi má sjá Dr. Michio Kaku ræða lítillega um siðmenningartýpurnar.
Í þessu heillandi og skemmtilega myndbandi hérna segir eðlisfræðingurinn Brian Cox frá Large Hadron Collider (LHC) eindahraðalinum sem er verið að ljúka við smíði á og á að hefja tilraunir með sumrinu. Hann er staðsettur á CERN (European Organization for Nuclear Research) sem er stærsta öreindafræði eða háorkueðlisfræði rannsóknastofnun heimsins.
Það er talið að LHC eindahraðallinn geti framkallað Higgs boson sem er kallað ‘Guðs eindin‘ eða ‘God particle‘ í sumum alþýðlegum ritum og gæti athugun þess staðfest spár og “týnda hlekki” hins almenna viðurkennda líkans eðlisfræðinnar. Staðfesting á tilvist Higgs boson myndi vera þýðingarverður áfangi í leitinni að sameinaðri sviðskenningu.
Þess má geta að sumir hafa óttast að þessi tilraun muni geta leyst úr læðingi ný og voðaleg fyrirbrigði sem gæti hugsanlega leitt til dómsdags atburðarrásar. En vísindamenn hafa hinsvegar eftir nákvæmar athuganir komist að þeirri niðurstöðu að þetta muni ekki setja jörðina í hættu.
Það má sjá frekari upplýsingar um The Large Hadron Collider (LHC) á vefCERN.
Hérna er síðan myndbandið sem er 15 mínútur.
Hérna er annað myndband sem sýnir ferlíkið og er meðal annars rætt við prófessorinn Brian Cox.
The Pirate Bay sem er stærsti BitTorrent tracker í heimi opnaði fyrir stuttu síðan vefinn Baywords sem er bloggsamfélag og vill með því auðvelda fólki að koma sér upp óritskoðuðu bloggi.
Many blogs are being shut down for uncomfortable thoughts and ideas. We will not do that. Our goal is to protect freedom of speech and your thoughts. As long as you don’t break any Swedish laws in your blog, we will defend it.
Flest bloggkerfi geta ritskoðað efni ef þú ert að tengja á eða birta ólöglegt efni. Á Baywords á maður að geta gert það á frjálsari hátt enda vill Pirate Bay verja málfrelsið og hafa þeir allavega gengið mjög langt í því að gefa fólki svigrúm til að deila skrám.
Ég kom niður á skjáskot úr leiknum X3: Reunion sem sýnir risa sólarorku stöð sem framleiðir energy cells og er ein sú allra mest notaða varan í þessum viðskipta og bardaga geimleik og hinar ýmsu verksmiðjur í leiknum þurfa á að halda og eins skip ef þau ætla að geta ferðast hratt á milli hinna ýmsu svæða í alheimi leiksins.
X3: Reunion er frá árinu 2005 og fékk góðar viðtökur á sínum tíma. Hann var fyrst hannaður fyrir Windows en hefur verið aðlagaður fyrir Mac OSX og skilst mér að Linux aðlögun sé í vinnslu. Það má sjá meiri upplýsingar um leikinn á Egososoft sem hannar hann. Demo leikinn má finna hérna.
Það er annars að koma nýr leikur frá leikjaframleiðandanum sem heitir X3: Terran Conflict og á að byggjast á X3: Reunion þó hann eigi að vera stand alone leikur.
Þetta stutta myndband hérna er sýnishorn úr fræðslumyndinni Future by Design eftir William Gazecki sem á að lýsa lífi Jacque Fresco, heimsspeki hans og tæknilegum afrekum.
Jacque Fresco er iðnverkfræðingur, arkitektúrs hönnuður, félagsverkfræðingur og framtíðarfræðingur. Hann skrifar og heldur fyrirlestra um málefni eins og heildræna hönnun sjálfbærra borga, orkuhagkvæmni, stjórnun náttúruauðlinda og þróaða sjálfvirkni með fókus á ávinninginn fyrir samfélagið.
Michio Kaku er alþjóðlega viðurkenndur kennilegur eðlisfræðingur sem sérhæfir sig í strengjafræðinni og er framtíðarfræðingur.
Í þessu myndbandi ræðir hann meðal annars um Seti verkefnið og afhverju það hefur enn ekki fengið svar, nokkuð áhugavert sjónarhorn hjá þessum ágæta manni.
Forseti Kúbu Raul Castro hefur heimilað ótakmarkaða sölu á tölvum, DVD og myndbandsspilurum en aðeins útlendingum og fyrirtækjum hefur verið leyft að kaupa tölvur lengi vel. Kúbverjum hefur síðan verið lofað að geta keypt fleiri önnur raftæki á næstunni.
“Vegna meira fáanlegs rafmagns, þá hafa stjórnvöld samþykkt sölu á sumum búnaði sem var bannaður” segiri í tilkynningu frá kúbverskum stjórnvöldum.
Sala á mörgum raftækjum var bönnuð á Kúbu á tíunda áratugnum fylgjandi hruni Sovétríkjanna meðan Kúba varð af milljörðum dollara í styrkjum og olíu frá þeim og olli það orku samdrætti og daglegum truflunum á rafmagni. Árið 2006 tók Kúba síðan fyrir þessar truflanir með því að flytja inn hundruð rafala sem keyra á eldsneyti fluttu inn frá Venesúela.