Ég kom niður á ágætis myndband þar sem sýnt er nokkurn veginn hvernig ein tegund kjarnorkuknúins geimskips hefði verið.
Það var í gangi tilraunir á sínum tíma sem gekk undir nafninu Project Orion og var athugun á möguleikanum á að knýja geimför með nuclear pulse propulsion og átti að miða að því að finna ódýran og hakvæman kost til að ferðast á milli plánetna. Þetta verkefni átt að hafa hafist árið 1958 en missti stuðning yfirvalda vegna mengunnar sem myndi hljótast af slíku og er talið hafa lokið nokkrum árum seinna.
Það var gert ráð fyrir því að kjarnorku sprengjum yrði varpað frá bakendi skipsins og sprengd nokkrum tuga metra frá og þannig myndi skipið verða fyrir miklum þrýstingi sem myndi knýja það áfram. Afköstin voru talinn geta orðið mikil allavega í samanburði við aðra tækni sem er nýtt í dag til geimferða.
Við hönnun skipanna var gert ráð fyrir því að ummál skipanna myndi ná frá 17 metrum og allt að 400 metra og vegið frá 300 og allt að 8,000,000 tonnum og geta borið allt upp í 1080 sprengjur.
Hérna er myndbandið sem ég kom niður og sýnir þetta nokkurn veginn:
Girl with a Pearl Earring frá 2004 var tilnefnd til þriggja óskarsverðlauna og hlaut 12 verðlaun annarsstaðar, og tilnefnd til annarra 33 verðlauna.
He had a vision no one saw as clearly as she. In a house where everything had its place, where every image had meaning, he gave her the power to see the light. She gave him a look that would last forever…..
This film, adapted from a work of fiction by author Tracy Chevalier, tells a story about the events surrounding the creation of the painting “Girl With A Pearl Earring” by 17th century Dutch master Johannes Vermeer.
Þetta er mynd fyrir sælkera og aðra listhneigða með þokkadísinni Scarlet Johanson og er hugljúf og unun á að horfa.
Um daginn sendi streymis sjónvarps þjónustan Livestation mér tilkynningu um að mér væri hér með boðið að taka þátt í beta keyrslunni, en ég hafði fyrir löngu beðið þá um að vera boðið en það synjað mér og beðið mig að bíða.
Ég hlóð niður pakka frá þeim og setti upp og get núna horft og hlustað á nokkrar fréttastöðvar þar á meðal BBC World, arabísku Al Jazeera á ensku, Sky News, og EuroNews og France24 á bæði ensku og frönsku.
Livestation býður semsagt upp á beint streymi frá fréttastöðvum og þó það sé bara fáir aðilar að þessu eins og stendur þá lofar þetta góðu og fleiri munu bætast við með tímanum.
Livestation skilst mér að sé einungis fyrir Windows Xp og Vista en Mac útgáfa er í undirbúningi og eins stuðningur fyrir önnur kerfi.
Ég geri ráð fyrir því að það sé hægt að skrá sig hjá þeim og fá sent invite. Ef ekki hafðu þá samband við mig á Contact síðunni ef þú hefur áhuga og ég skal reyna að senda þér invite.
Árið 1973 hófst olíu krísa sem orsakaðist af því að OAPEC (Organization of Arab Petroleum Exporting Countries) neitaði að flytja út olíu á einu tímabili til ríkja sem stutt höfðu Ísrael í stríði þess við Sýrland og Egyptaland. Þess ríki voru Bandaríkin og bandamenn þeirra í vestur Evrópu ásamt Japan. Á sama tíma ákvaðu aðilar að OPEC að auka verðið á olíu. Þetta jók verðbólgu í þessum ríkjum, hafði bælandi áhrif á efnahagslega virkni þeirra og leiddi til efnahagslegrar lægðar meðan dróg úr framleiðslu og meira atvinnuleysi skapaðist.
Þetta leiddi til áfalls fyrir þessi lönd og ókyrrðar. Þetta hafði slæm áhrif á samfélögin og margir þjóðfélagshópar urðu fyrir barðinu á þessu. Þetta var langvarandi krísa í þessum samfélögum. Fjármálastofnanir þessara ríkja gripu til ýmissa aðgerða sem í sumum tilfellum hefur verið talin hafa haft neikvæð áhrif frekar en jákvæð og hafa þannig aukið og framlengt óhagstæð áhrif verslunnarbannsins sem stóð þó í bara í tiltölulega skamman tíma.
Reyndar farnaðist Japan betur miðað við öll hin og hóf á sama tíma byltingu í bifreiðasmíði. Bílarnir urðu meira sparneytnari og hagkvæmari. Auk þess þá hóf Japan að færast frá olíufrekum iðnaði og yfir í iðnað eins og raftækni.
Ég vildi bara skrifa aðeins um þetta þar sem þetta hefur verið mér lengi hugleikið og sérstaklega hvort þetta hafi haft áhrif á stefnur og strauma alveg inn í níunda áratuginn. Og auðvitað gerði það að einhverju leyti. Þetta hefur haft jákvæð áhrif á framgang siðmenningar og eins neikvæð.
Tölvugeta mun jafnast á við greind manneskju innan næstu 20 ára vegna aukins hraða tækniþróunnar samkvæmt leiðandi vísinda “framtíðarfræðingi”.
Það mun verða 32 sinnum meiri tæknilegar framfarir næstu hálfa öldina en það var alla 20. öldina, og ein af útkomunum gæti orðið sú að gervigreind verði á við mannlega greind með árinu 2020 segir þessi Bandaríski tölvu gúrú, Ray Kurzweil sem er talinn meðal mest djúptækustu persónna innan sviðs tæknilegrar forspáar og er frumkvöðull innan ýmissa tölvutækni sviða eins og ljóskennsl stafa (optical character recognition) eða tækninnar á bak við geisladiska.
Að leita að áhugaverðum myndböndum á video sharing síðum getur verið tímafrekt. Segjum að þú viljir leita að einhverju áhugaverðu efni um vísindi þá færðu mjög margar niðurstöður sem geta verið misáhugaverðar og maður eytt óþarflega löngum tíma í að fara yfir.
Ég kom niður á áhugaverðan vef sem lofar góðu en það er ScienceHack sem er vísinda myndbanda leitarvél. Vefurinn er þó á alpha stigi þannig að það er ekki mikið efni sem er komið.
ScienceHack er fyrst og fremst ætlað almenningi þannig að þetta er kannski ekki sérstaklega áhugavert fyrir lengra komna. En þetta getur samt verið af áhuga fyrir yngri nema eða einhvern með áhuga á vísindum.
Þess má geta að öll myndbönd þarna eru farin yfir af vísindamanni til að sannreyna nákvæmni og gæði þeirra.
Þetta er myndskeið úr náttúrulífsþætti David Attenborough þar sem hann segir frá einni fuglategund sem kallast á ensku máli lyrebird og er dugleg við að líkja eftir söngvum annarra fuglategunda og öðrum umhverfishljóðum.
Ég lít frekar jákvæðum augum á það að Íranar þrói kjarnorkutækni og horfi því spenntur eftir framvindu þessa máls. Íranar eiga að hafa sjálfsákvörðunnarrétt í þessu máli enda er orkuframleiðsla þjóðar eitt af grundvallarstoðum hennar í nútímanum og henni því mikilvæg til afkomu og áframhaldandi þróunnar.
Olíu auðlindir Írans eru áætlaðar 133 milljarðar tunna og er talið duga Írönum í minna en hundrað ár. Íranar vilja nýta olíuna í arðsama framleiðslu og útflutning í stað raforkuframleiðslu auk þess sem þörf er á því að draga úr mikilli mengun enda er nýting olíu og gas til raforkuframleiðslu ekki laus við slíkt. Ennfremur þá eykst orkuþörf Írana stöðugt og hraðar en þeir geta mætt eða um 8% árlega og raforkuframleiðsla þeirra verður að þrefaldast næstu 15 árin til að mæta áætlaðri þörf. Næstum 40% af hráolíu Írans fer til notkunnar innanlands. Ef þetta hlutfall eykst þá dregur úr olíutekjum Írans og þar með hagvexti.
Á sínum tíma þegar keisarinn sat að völdum í Íran, studdu Bandaríkjamenn við kjarnorkuáætlun Írans sem miðaði að raforkuframleiðslu. Það var á þeim tíma talið hugsanlegt að Íranar myndu nýta kjarnorkuna í hernaðarmiði en það virtist ekki hamla samstarfi þeirra. Nú hinsvegar er sagan önnur eftir að gerð var bylting árið 1979 og konungsveldinu breytt í íslamskt lýðveldi.
Ég kom niður á orðið tumblelogging á netinu en það er orð sem lýsir því þegar fólk heldur uppi síðu á netinu þar sem það skráir niður hugsanir sínar mjög stuttlega eða segir frá einhverju athyglisverðu sem það hefur komið niður á með tilvitnun eða tengli, myndum eða videó eða jafnvel stuttri samræðu. Þetta er dálítið ólíkt hefðbundnu bloggi í dag og hefur verið kallað pönk rokk bloggsins þar sem einblínt er á stutta framsetningu á því sem borið hefur verið fyrir mann. Það mætti líta á þetta sem úrklippubók.