About
Realityum er blogg fyrir áhugaefni mín sem er menning almennt. Ég blogga líka um tölvutengd efni, vefinn, Wordpress blogg efnisstjórnunnarkerfið og stundum persónulega hagi.
Lesendum er velkomið að hafa samband við mig og koma á framfæri því sem liggur þeim á hjarta eða öðru sem tengist þessu bloggi, hvort sem eru athugasemdir við bloggið, tillögur, ráðleggingar, fyrirspurnir eða kvartanir.
Þessi vefsíða var fyrst sett upp 2. nóvember 2007. Sumar færslur eru reyndar eldri en það er tilkomið af því að ég afritaði færslur af öðru bloggi mínu hýstu hjá Wordpress.com.
Þetta blogg keyrir á Wordpress kerfinu og er notuð 2.7 Beta 3 útgáfan sem er frá því í nóvember 2008.
Gravatar
Gestir sem koma með athugasemdir geta notað Gravatar (globally recognized avatar) til að sýna mynd af sér. Þarf þá að skrá sig þar og hlaða upp mynd sem maður vill nota og tengja við netfang sem er notað við athugasemd.
Áskrift
Það er hægt að gerast áskrifandi að feedi fyrir þetta blogg og fá þannig nýjustu færslur á þann hátt sem hentar lesanda. Það er líka hægt að nálgast feed fyrir nýjustu athugasemdir við allar færslur eða einstaka færslu þegar hún er skoðuð. Feed er líka til staðar fyrir ákveðinn færsluflokk og eins stikkorð.