Firefox

You are browsing the Firefox tag archive.

Firefox viðbót sem síar út óæskilegar athugasemdir á YouTube

Ég held að ég muni fara að skoða meira athugasemdir við myndbönd á YouTube þar sem ég hef sett upp viðbót við Firefox sem heitir YouTube Comment Snob sem síar frá óæskilegar athugasemdir á YouTube.
Með þessari viðbót þá getur maður látið fela athugasemdir sem:

Hafa ákveðinn fjölda stafsetningarvillna
Hafa ekki neina hástafi
Hafa einungis hástafi
Byrja ekki á stórum staf
Hafa of mörg greinarmerki (!!!!! ?????)
Hafa óhóflega hástafi
Hafa blótsyrði

Þegar [...]

Í tilefni útkomu Firefox 3 og Opera 9.5

Í skrifuðum orðum hefur Firefox 3 verið hlaðið niður um 12 milljón sinnum síðan á þriðjudaginn 17. júní þegar endanlega útgáfan af vafranum kom formlega út. Á Íslandi hefur hann verið hlaðinn niður 7,728 sinnum.
Hlutfall allra Mozilla/Firefox vafra á vefnum á fyrsta ársfjórðungi þessa árs taldist vera 15.87% sem gerir Mozilla vafrann þann næst útbreiddasta á [...]

Firefox viðaukar sem ég er að nota

Ég nota mestmegnis Firefox vafrann en hina vafranna aðeins til að prufa út vefi. Það er hægt að bæta við mörgum gagnlegum viðaukum eða bara áaukum við Firefox og er ég að nota nokkra skemmtilega sem ég ég vil gjarnan gefa upp ef það myndi vekja áhuga hjá öðrum sem væru ekki þegar að nota þá.
1. [...]